Við keyrum vöruna FRÍTT heim á höfuðborgarsvæðinu

Skilmálar

Afhending vöru

Allar pantanir eru afgreiddar 1-3 virkum dögum eftir að pöntun berst. Við reynum alltaf að afgreiða pantanir eins fljótt og auðið er. 

Verð á vöru og sendingakostnaður

Verð í vefverslun eru með inniföldum 11% og 24% virðisaukaskatti.

Frí heimsending af öllum smávörum á höfuðborgarsvæðinu ef verslað er fyrir 15.000 kr. eða meira. Annars bætist sendingarkostnaður við í greiðsluferlinu.

Verð eru birt með fyrirvara um myntbreytingu eða prentvillu.

Greiðsla pantana og öryggi

Hægt er að greiða fyrir vörur í vefversluninni með eftirfarandi hætti:

Með greiðslukortum í gegnum örugga greiðslusíðu Valitor. Tekið er við kreditkortum og debetkortum.

Millifærsla. Þegar gengið er frá pöntun er hægt að velja það að millifæra. Millifærsla þarf að berast innan við 24 tíma frá pöntun.

Að skipta og skila vöru

Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn framvísun sölureiknings sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu ástandi og í upprunalegum umbúðum. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru getur hann fengið endurgreitt.

Gölluð vara

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn. 

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness.